Tónlistarmaður, Grafískur hönnuður og videolistamaður
HÆ :)
Ég heiti Daníel Þorsteinsson og er tónlistarmaður og video listamaður á kvöldin og grafískur hönnuður á daginn.
Ég var og er trommuleikarinn í Maus en eftir að við fórum í eilífðarpásu, þá stofnaði ég hljómsveitina Sometime árið 2006. Þar samdi ég og tók upp tónlistina. Það var í Sometime þegar ég virkilega byrjaði að njóta þess að taka upp tónlist, því trommurnar í Maus upptökum er alltaf heil taka og það er mega stress á að klikka ekki neitt.
TRPTYCH er verkefni sem ég er búinn að vera í síðan 2016 og það gjörsamlega heldur í mér lífi. Ég hef aldrei notið þess eins mikið og núna að búa til tónlist, gera concept, myndbönd, grafík og gefa út.