Aron Elvar Finnsson

Meðlimur í stjórn knattspyrnudeildar Þórs á Akureyri. Eins og allir vita eru erfiðir tímar í samfélaginu og rekstur fyrirtækja í mikilli lægð. Íþróttalið eru engin undantekning þar á enda veltur rekstur flestra þeirra að stórum hluta til á styrkjum fyrirtækja, sem eðlilega hafa dregist saman.


Við í stjórninni hjá Þór vildum því setja af stað smá verkefni sem á að höfða til okkar frábæru stuðningsmanna og biðla til þeirra um hjálp á þessum erfiðu tímum. Við bjóðum upp á ýmislegt sem hægt er að kaupa af okkur, hvort sem að það eru hlutir eins og árskort á völlinn í sumar eða miði á lokahófið, eða upplifanir eins og að fá að mæta í klefann eftir sigurleik í sumar og taka þátt í fagnaðarlátunum með liðinu. Verðbilið er stórt svo ættu allir að geta fundið sér eitthvað við hæfi.


Áfram Þór! Stöndum saman á þessum erfiðu tímum. #DFK

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Powered by Karolina