Tækifærisbók eftir Per: Segulsvið.
... read more

FINISHED

This project is now finished.

€2,981

raised of €2,600 goal

0

days to go

83

Backers

115% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this! All gone!

Pledge € {{ reward.amount }} {{ reward.amount * 150 }} ISK


{{ reward.title }}

{{ reward.description }}

Limited ({{ stockLeft }} left of {{ reward.stock }} ) Gone (0 left of {{ reward.stock }} )
{{ reward.stock_reserved }} backer {{ reward.stock_reserved }} backers
Get this!

Pledge without a reward

Team

Ólafur Josephsson

Project Manager

Svanur Magnús

Textahöfundur

Árni Þór Árnason

Myndlistarmaður

Plan

To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.

Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.

Bókaskrif

100%
  • Skrif
  • Teikningar
  • Prófarkarlestur
  • Lokapróförk

Hönnun

100%
  • Útlit
  • Kápuhönnun
  • Umbrot
  • Prentlögn
  • Tilboð í prent

Útgáfa

100%
  • Prentun
  • Dreifing
  • Markaðsetning
  • Senda út verðlaun til þeirra sem styrktu

Further Information

Per: Segulsvið er þríhöfða apparat, ekki ópsvipað beltagröfu í fjarlægð. Í stjórnklefanum sitja þeir Árni Þór Árnason myndlistarmaður, Ólafur Josephsson tónlistarmaður og Svanur Magnús textasmiður.

Smiður finnur lúður er fyrsta ritsmíð Per: Segulsvið, en áður hafa komið út tvö hljóðverk, afurðin Kysstu mig þungi spánverji sem löngu er orðin klassísk meðal erlendra skiptinema og hljómplatan Tónlist fyrir hana sem tilnefnd var til Kraumsverðlaunanna 2013 – þrátt fyrir að vera aðeins auglýst í Bændablaðinu.

Smiður finnur lúður var gefin út rafrænt á myrkum afkima alnetsins síðsumars 2013. Þeim sem þangað rata hefur bókin verið aðgengileg án endurgjalds og mun verða svo áfram. Skortur á fjármagni hefur hinsvegar aftrað því að bókin hafi verið gefin út í físísku formatti – líkt og hún á skilið. Nú stendur það til bóta.

Per: Segulsvið vonast til þess að með þinni aðstoð kæri lesandi, verði hægt að frelsa smiðinn úr rafrænum fjötrum sínum og senda hann í allri sinni dýrð út í kosmosið – 24 síðna bók í litríkuprenti.

Hér finnur þú rafræna útgáfu bókarinnar og annað gúmmelaði úr smiðju Per: Segulsvið – www.persegulsvid.co.nf

Smiður finnur lúður

Per er smiður, hreint afbragðs góður smiður. Hann sagar og neglir af mikilli kostgæfni. Per starfar á dálitlu smíðaverkstæði í bakhúsi við baunalager nokkurn. Í bakhúsi þessu er einnig að finna argentínskan vöffulgerðarskóla og tólf feta langan málmsívalning sem kallar sig Þóri.“

Á þessum orðum hefst bókin, Smiður finnur lúður. Hún hefði sjálfsagt getað hafist á einhverjum allt öðrum orðum, eins og gengur og gerist, en þessi urðu fyrir valinu, í þessari röð. Í kjölfarið koma síðan fleiri orð, hvert á fætur öðru – slíkt er eðli bóka.

Eins og nafnið gefur til kynna, fjallar Smiður finnur lúður um smið nokkurn sem finnur lúður á förnum vegi. Slíkt getur hent smiði og aðra iðnaðarmenn óforvarandis og haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér – um slíka atburðarás fjallar einmitt þessi bók.

Ekki hengja bakara … frelsaðu smið!

Smiður finnur lúður er alhliða tækifærisbók: barnabók fyrir fullorðna, fullorðinsbók fyrir börn; hún er trappa málarans, sleif ostagerðarmannsins og grifflur dansarans. Hún er í senn ætluð miðaldra gröfumönnum sem rauðhærðum sveitadrengjum með eyrnarlokka.

Bókin er heiðarlega myndskreytt og hlaðin nokkru gamni, í bland við alvarlegri málsgreinar; unnar útfrá gildum nokkurra fjármálafyrirtækja. Átján húðlæknum var fórnað við gerð bókarinnar og vefhönnuður aðlaður til mótvægis. Slíkt má ekki vanta þegar verk eins og þetta er annars vegar. Almættið þarf sitt. Allt leitar jafnvægis … eða eins og Per: Segulsvið gjarnan segir, „Hausi gefur, hausi fær“.

Hjálpaðu veröldinni að leita jafnvægis. Styrktu Per: Segulsvið við að prenta bók um smið.

Ekki hengja bakara … frelsaðu smið – og tryggðu þér eintak af bókinni með laufléttri sveiflu krítarkortsins.

{{ userName(backer) }}

{{ backer.short_description }}

FINISHED

This project is now finished.

€2,981

raised of €2,600 goal

0

days to go

83

Backers

115% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this! All gone!

Pledge € {{ reward.amount }} {{ reward.amount * 150 }} ISK


{{ reward.title }}

{{ reward.description }}

Limited ({{ stockLeft }} left of {{ reward.stock }} ) Gone (0 left of {{ reward.stock }} )
{{ reward.stock_reserved }} backer {{ reward.stock_reserved }} backers
Get this!

Pledge without a reward

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464