Vínylplata
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
Fríða Dís hefur tekið þátt í mörgum tónlistartengdum verkefnum í gegnum tíðina (Klassart, Eldar, Trilogia) en hóf nýlega að vinna að eigin efni sem mun koma út á fyrstu sólóplötu hennar sem ber heitið Myndaalbúm. Á plötunni er að finna 8 frumsamin lög með textum á bæði íslensku og frönsku. Rödd Fríðu fær að njóta sín í dreymandi hljóðheimi sem drifinn er áfram af hráum en þéttum bassaleik hennar sem á augljósar rætur í fyrstu áratugum rokksins.
Yrkisefnið er persónulegt þar sem hvert lag er unnið út frá ákveðinni minningu eða reynslu úr lífi Fríðu sem raðast saman líkt og ljósmyndir í albúmi. Tónlistin er þannig römmuð inn á myndrænan hátt. Lögin sem verða að finna á plötunni eru:
1. Myndaalbúm
2. Blátt portrett
3. Sár
4. Kisa Kahlo
5. Parísardraumur vol. 1
6. Parísardraumur vol. 2
7. Baristublús
8. Surmeli
Lagið Baristublús var gefið út fyrr á árinu og má hlýða á það hér að neðan.
Lögin eru samin á 6 ára tímabili undir mismunandi kringumstæðum og hafa upptökurnar verið tilfinningaleg úrvinnsla þar sem atburðum fortíðarinnar er fundinn farvegur. Fríða stjórnaði útsetningunum ásamt því að syngja, leika á bassa, rafmagnsgítar, flautu, áslátt og syngja raddir.
Upptökur hófust í febrúar 2019 hjá Smára Guðmundssyni í Stúdíó Smástirni og þar lögðu þau Fríða grunninn að lögunum. Upptökum var síðan haldið áfram í haust hjá Stefáni Erni Gunnlaugssyni í Stúdíó Bambus.
Í upptökuferlinu hefur átt sér stað mikil og falleg samvinna með Smára og Stefáni sem leika einnig á plötunni. Smári spilar á kassagítar og rafmagnsgítar og Stefán Örn á píanó, hljómborð, hammond, hljóðgervla, áslátt og söng raddir. Hann sér einnig um strengjaútsetningar og forritun og að hluta raddútsetningar, ásamt því að hljóðblanda plötuna. Aðrir framúrskarandi hljóðfæraleikarar koma einnig að upptökunum. Kristinn Snær Agnarsson leikur á trommur, Óskar Guðjónsson á saxófón, Matthías Stefánsson á fiðlu og víólu og félagar úr Bartónum syngja raddir. Sigurdór Guðmundsson hjá Skonrokk Studios sér svo um hljóðjöfnun.
Hönnun og umbrot á plötuumslagi er í höndum Júlíu Hvanndal.
Áætluð útgáfa Myndaalbúms er 1. febrúar 2020.
Útgáfutónleikar verða haldnir í Berginu Hljómahöll á afmælisdegi Fríðu þann 15. febrúar.
Tónsmíðar og upptökur voru styrktar af Hljóðritasjóði Rannís og Tónskáldasjóði RÚV og STEFs.
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464