Heimildarmynd um þrettándagleðina í Eyjum sem hefur verið haldin óslitið frá árinu 1948. Um 200 manns koma að hátíðinni þar sem Grýla, Leppalúði, jólasveinar, tröll, álfar og aðrar kynjaverur kveðja jólahátíðina með Eyjamönnum og gestum þeirra.
... read more

FINISHED

This project is now finished.

€5,854

raised of €5,000 goal

0

days to go

75

Backers

117% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this! All gone!

Pledge € {{ reward.amount }} {{ reward.amount * 150 }} ISK


{{ reward.title }}

{{ reward.description }}

Limited ({{ stockLeft }} left of {{ reward.stock }} ) Gone (0 left of {{ reward.stock }} )
{{ reward.stock_reserved }} backer {{ reward.stock_reserved }} backers
Get this!

Pledge without a reward

Plan

To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.

Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.

Þrettándinn

100%
  • Upptökur
  • Fjármögnun
  • Handrit
  • Klipping og eftirvinnsla
  • Frumsýning

Further Information

Íslendingar fagna þrettándanum, síðasta degi jólahátíðarinnar, víða um land 6. janúar. Knattspyrnufélagið Týr tók við þrettándagleðinni í Eyjum árið 1948. Frá því að félögin Týr og Þór voru sameinuð undir merkjum ÍBV 1997 hefur íþróttafélagið haldið hátíðina.

Kynslóð fram af kynslóð hafa Eyjamenn haldið þrettándahátíðinni gangandi. Nokkrir hópar koma að skipulagi og framkvæmd hátíðarinnar, má þar nefna blysgöngu jólasveina, gerð trölla og flugeldasýningar. Hátíðin er magnað sjónarspil og hvílir yfir henni mikil dulúð.

Þrettándinn er næsta heimildarmynd framleiðslufélagsins SIGVA media og verður hún sýnd í vetur. Heimildarmyndin Fólkið í Dalnum um Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum eftir Sighvat Jónsson og Skapta Örn Ólafsson var frumsýnd síðastliðið sumar og nú fylgir mynd um annan merkilegan menningarviðburð Vestmannaeyja.

Þrettándinn eins og jólin

Eyjafólkið Sighvatur Jónsson, Geir Reynisson og Hrefna Díana Viðarsdóttir hafa unnið að heimildarmyndinni ásamt mörgum sem koma að undirbúningi þrettándagleði ÍBV.

Tónlist myndarinnar er unnin af Halldóri Gunnari Pálssyni og Ragnhildi Gísladóttur. Bæði þekkja þau vel til þrettándagleðinnar í Eyjum. Tónlistin rammar inn spennu, dulúð, fegurð og söknuð. „Á þrettándanum kveðjum við jólin, þetta er ljúfsár stund,“ segir Halldór Gunnar.

Hrefna Díana er þjóðfræðingur og kemur að vinnu við handrit og heimildaöflun við framleiðslu myndarinnar. Stuðst verður við BA ritgerð Hrefnu Díönu í þjóðfræði við Háskóla Íslands frá 2012 sem var rannsóknarritgerð um þrettándahátíðina í Vestmannaeyjum.

Upptökur frá þrettándanum undanfarin fimm ár

Í kringum þrettándann síðustu fimm ár hafa verið tekin upp viðtöl og myndefni frá undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar. Sumir sem rætt er við í myndinni hafa komið að starfinu í mörg ár og jafnvel áratugi.

Upptökurnar hafa varðveitt mikilvægar heimildir eins og sögu Sigríðar Ólafsdóttur, Sirrýjar í Gíslholti, sem tók þátt í gerð fyrstu tröllanna um 1960. Viðtalið við Sirrý var tekið upp á þrettándanum 2016 en hún lést rúmum tveimur árum síðar. Sirrý sagði frá því í viðtalinu hvernig málum var bjargað þegar vantaði ull við tröllagerðina. „Þá tók ég bara skærin og fór niður í kindakofa heim í Gíslholt til pabba og klippti neðan af kindunum eins og ég gat.“

Kynslóðaskipti hjá Grýlu og Leppalúða

Í myndinni er einnig talað við Eyjamann sem hefur aðstoðað Grýlu á þrettándanum í hálfa öld, en hann tók við starfinu af föður sínum. Á síðasta þrettánda var maðurinn að jafna sig eftir aðgerð og fékk son sinn til að leysa sig af. Hið sama á við um eiginmann Grýlu en aðstoðarmaður Leppalúða var fastur við vinnu erlendis og fékk son sinn til að hlaupa í skarðið fyrir sig.

Einstakar myndir náðust af kynslóðaskiptum Grýlu og Leppalúða við upptökur á þrettándanum 2019 eins og sést í kynningarstiklu myndarinnar efst á síðunni.

Eyjatröll á Ljósanótt í Reykjanesbæ

Í myndinni eru skoðuð tengsl Eyjatröllanna við Skessuna í Skessuhelli í Reykjanesbæ. Leiðir þessara kynjavera lágu saman á Ljósanótt í september 2008 þegar Skessan flutti í hellinn.

Eyjamaðurinn Ásmundur Friðriksson kom að Ljósanótt sem verkefnisstjóri hjá Reykjanesbæ á þessum tíma. Hann fékk aðstandendur þrettándans í Eyjum til að flytja nokkur tröll frá Eyjum til Reykjanesbæjar til að taka þátt í viðburðinum í tengslum við flutning Skessunnar í Skessuhelli. Þetta mun vera í eina skiptið sem Eyjatröllin hafa haldið í „útrás“ til annars sveitarfélags.

Þrettándinn á Facebook

Fylgstu með nýjustu fréttum af framleiðslunni á Facebook síðu Þrettándans.

{{ userName(backer) }}

{{ backer.short_description }}

FINISHED

This project is now finished.

€5,854

raised of €5,000 goal

0

days to go

75

Backers

117% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this! All gone!

Pledge € {{ reward.amount }} {{ reward.amount * 150 }} ISK


{{ reward.title }}

{{ reward.description }}

Limited ({{ stockLeft }} left of {{ reward.stock }} ) Gone (0 left of {{ reward.stock }} )
{{ reward.stock_reserved }} backer {{ reward.stock_reserved }} backers
Get this!

Pledge without a reward

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464