Allur Ævintýraskógurinn í vasann þinn
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
Lottuappið er glænýtt, íslenskt smáforrit fyrir Android og iOS snjalltæki þar sem hægt er að nálgast öll ævintýri Leikhópsins Lottu á einum og aðgengilegum stað. Aðgangur að appinu fæst gegn mánaðarlegri eða árlegri greiðslu og áhersla lögð á þægilegt viðmót sem jafnvel yngstu krakkar geta lært hratt og örugglega á.
Engar auglýsingar eða faldar aukagreiðslur eru í appinu og eftir að greitt hefur verið fyrir áskriftina hefur notandinn fullan aðgang að öllu því sem Lottuappið býður upp á. Innskráning í appið fer fram í gegnum Facebook, Google eða með netfangi og lykilorði. Allir á heimilinu geta þá búið til sinn eigin „prófíl“ og valið sér sína uppáhalds Lottupersónu sem prófílmynd. Með hverri áskrift er hægt að nota appið í þremur snjalltækjum samtímis.
Hlusta
Hægt er að hlusta á öll útvarpsævintýri Lottu frá upphafi í spilara sem býður upp á allskyns möguleika á borð við svefnstillingu, slembival og fleira. Hver notandi getur opnað sinn prófíl, ýtt á play og byrjað að hlusta frá sama stað og hætta var síðast án þess að hafa áhrif á hlustun annarra á heimilinu. Einnig verður hægt að setja stök lög eða heil ævintýri „offline“ og þannig hlusta án netsambands sem kemur sér einkar vel ef fara á í flug eða rúnt um hálendið. Lotta hefur á liðnum árum gert 12 ævintýri sem öll má finna í appinu og til viðbótar stórskemmtilega jólaplötu sem kemur sér einkar vel á þessum árstíma þegar henda á upp einu jólaballi í snatri. Á hverju ári bætist svo nýtt ævintýri í safnið.
Horfa
Árið 2018 réðst Leikhópurinn Lotta skipulega í enduruppsetningar á gömlu verkum hópsins og fara þær sýningar fram innanhúss yfir vetrartímann réttum 10 árum eftir að verkin voru fyrst sett upp. Þessar uppsetningar hafa nú verið kvikmyndaðar í fullkomnum mynd- og hljóðgæðum með öllu tilheyrandi og verða eingöngu aðgengileg í Lottuappinu. Hér gildir það sama og í hlustunarhlutanum, möguleikinn á að horfa „offline“ er til staðar og auðvitað bætist nýtt verk í appið árlega. Strax við útgáfu verða Galdrakarlinn í Oz og Rauðhetta aðgengileg til áhorfs, Hans Klaufi bætist við safnið á næsta ári og svo koll af kolli.
Skoða
Hægt verður að skoða myndir og texta úr hverju verki fyrir sig á meðan þú hlustar. Þetta kemur sér vel til undirbúnings fyrir karókípartýin sem munu án efa eiga sér stað reglulega á flestum Lottuheimilum með tilkomu Lottuappsins.
Syngja
Hægt verður að horfa á og syngja með karókímyndböndum við helstu slagara Lottu, og á endanum öll útgefin lög leikhópsins frá upphafi. Myndböndunum er hægt að raða í lagalista fyrirfram, eða jafnóðum í öðru tæki á meðan aðrir syngja. Því þarf aldrei að vera dauð stund í karókípartýi heimilisins.
Lagalistar
Í hverjum prófíl verður hægt að búa til sína eigin lagalista. Fyrirfram verða nokkrir mismunandi listar klárir, til dæmis „Partý“- og „Fara að sofa“-listarnir ásamt „Uppáhalds“-listanum sem eigandi prófílsins uppfærir jafnóðum með því að ýta á hjartalaga tákn við viðeigandi lag, ævintýri eða myndband.
Foreldrasvæði
Þegar forráðamanneskja hefur keypt aðgang að Lottuappinu fær viðkomandi aðgang að sérstöku foreldrasvæði sem börnin sjá ekki. Til þess að komast inn á svæðið þarf að stimpla inn PIN-númer sem eigandinn velur. Á því svæði er hægt að sjá um greiðslumál, framlengja áskrift eða segja henni upp. Einnig getur forráðamaður sett tímatakmörk fyrir prófíla heimilisins sem endurnýja sig á sólarhringsfresti.
Tímatakmarkanir
Tímaflokkarnir eru tveir: Hlustunartími – hversu lengi má hlusta á ævintýri eða lög á einum sólarhring – og skjátími – hversu lengi má horfa á myndbönd á einum sólarhring. Ef forráðamanneskja ákveður að barn megi hlusta, til dæmis í tvo tíma á dag og horfa í hálftíma á dag er hægt að segja appinu það með einföldum hætti á örfáum sekúndum. Hægt er að velja mismunandi lengd fyrir mismunandi prófíla og koma þannig í veg fyrir að börnin okkar hverfi of langt inn í snjalltækin, þó svo að við séum ekki til staðar til að hafa yfirumsjón með notkuninni öllum stundum.
Verð
Áskrift að Lottuappinu mun kosta 890 kr. á mánuði ef borgað er mánaðarlega. Ef borgað er fyrir heilt ár í einu greiðast 11 mánuðir en sá tólfti fylgir með. Þó fæst sértilboð hér á síðunni þar sem heilt ár fæst á verði tæplega 10 mánaða.
Útgáfa
Lottuappið kemur út þann 20. desember 2019.
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464