Hjálpið okkur að gefa út glænýja plötu á vínyl!
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
Hljómsveitina skipa Geir Sigurpáll Hlöðversson, gítar og söngur; Guðmundur Höskuldsson, gítar; Hafsteinn Már Þórðarson, bassi og Jón Knútur Ásmundsson leikur á trommur.
Strákarnir hittust fyrst 7. febrúar 2004 í Neskaupstað. Einu mennirnir í bænum sem allir áttu snjáð eintak af Ocean Rain með Echo and the Bunnymen í plötuskápnum. Undir þokumettuðum himni, í kjallara í Neskaupstað, hófu þeir æfingar, hafa ekki enn hætt og hafa fengið byr undir báða vængi – eru byrjaðir að æfa uppi í risi.
Þeir lýsa sjálfum sér sem „indí-bandi“, innblásnu af þungum og þéttum takti hinnar norðfirsku öldu og tregafullri tilvist hins miðaldra nútímamanns.
Hljómsveitin staðfesti tilvist sína með útgáfu plötunnar Morning to Kill árið 2012. Með hækkandi sól kemur út önnur breiðskífa Coney Island Babies sem hefur enn ekki hlotið titil. Hún verður tekin upp í Stúdíó Síló á Stöðvarfirði undir stjórn Jóns Ólafssonar.
Coney Island Babies á Facebook.
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464