Hæ og takk fyrir að heimsækja síðuna mína. Ég heiti Einar Óli, og er að gefa út mína fyrstu EP plötu sem mun innihalda 4 lög eftir mig. Ég yrði ævinlega þakklátur þeim sem hefðu tök á því að hjálpa mér að gera þetta að veruleika. Margt lítið gerir eitt stórt <3
... read more

In Progress

This project has been successfully funded and is now executing.

€2,174

raised of €2,000 goal

0

days to go

65

Backers

109% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this! All gone!

Pledge € {{ reward.amount }} {{ reward.amount * 150 }} ISK


{{ reward.title }}

{{ reward.description }}

Limited ({{ stockLeft }} left of {{ reward.stock }} ) Gone (0 left of {{ reward.stock }} )
{{ reward.stock_reserved }} backer {{ reward.stock_reserved }} backers
Get this!

Pledge without a reward

Team

Plan

To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.

Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.

Mind like a maze

42%
  • Undirbúningur
  • Lög og textar
  • Útsetning
  • Upptökur
  • Logo
  • Mix og master
  • Útgáfa!

Further Information

Sýnishorn.
Titillagið "Mind like a maze" var flutt fyrir gesti í Hofi á Akureyri.

Hver er Einar Óli?

Einar Óli er laga, og textasmiður sem hefur undanfarin 3 - 4 ár verið að semja tónlist. Lögin mín eru í fljótandi Indie/pop stíl með smá dass af mjúku rokki inn á milli.
Í textunum legg ég upp með það, að segja sögur af minni reynslu eða einhverra annara sem ég þekki. En sumir textarnir eru bara allskonar pælingar um lífið og tilveruna, en ég set þá alltaf upp þannig, að sem flestir nái að tengja og búa til sína eigin sögu í hausnum á sér.

Verkefnið

Þetta verkefni er búið að vera hugmynd í hausnum á mér í dágóðan og loksins ætla ég að láta verða að þessu. Platan mun innihalda fjögur lög og hefur fengið nafnið Mind like a maze, pt 1 og kemur aðeins út á streymisveitur til að byrja með.
Þetta er í rauninni bara helmingur plötunnar. Þegar seinni hlutinn kemur verður hægt að kaupa plötuna í heild sinni sem mun innihalda 9 níu lög.

Afhverju að gera þetta?

Fyrst og fremst, er ég að þessu fyrir sjálfan mig. Ég hef fundið mína hillu og hérna á ég heima finnst mér.
Eins og ég sagði áðan, að þá hef ég verið að semja núna í rúmlega þrjú ár en það eru ekki margir sem hafa fengið að njóta góðs af því, þar sem ég hef verið hálf feiminn við að opinbera þetta þangað til núna. þetta eru lög og textar eftir mig, þar sem ég er tala um hluti sem eru mér kærir og skipta mig máli. Ég hef safnað kjarki í góðan tíma núna og það er komið að því að taka skrefið og ég er meira tilbúinn en nokkru sinni fyrr.
Eins og flestir vita, þá er þetta ferli ekkert ókeypis og ég verð ævinlega þakklátur þeim sem sjá sér fært um að styrkja þetta verkefni mitt.

Þeir sem koma að þessu

Ég er alls ekki einn í þessu, því með mér eru margir snillingar og hafa allir mikið fram á að færa.
Kannski við hæfi að byrja á Kristjáni Edelstein. Hans hjálparhönd hefur verið mér ómetanleg, en hann hjálpar mér að útsetja lögin á sem besta hátt og er einnig á tökkunum í upptökuferlinu. Hann kemur til með að spila líka inná plötuna.
Guðjón Jónsson góðvinur minn sér um píanóið. Hann hefur verið með mér hvað lengst, nánast frá því að ég byrjaði að semja.
Bergur Einar sér um að slá á trommurnar. Hann Bergur er ungur maður en alls enginn nýjungur í tónlist. Hann spilar með hljómsveitinni Vök svo eitthvað megi nefna.
Ásmundur Jóhannson tók einmitt upp fyrir okkur trommurnar í Stúdíó paradís, eintóm fagmennska þar.
Hann Jón Tumi eða "Flammeus" eins og hann er oft kallaður, kemur við sögu í einu lagi þar sem hann slær á bassann.
Allir frábærir í sínu fagi og er ég vægast sagt þakklátur fyrir þeirra aðstoð. Takk strákar!

Kristján Edelstein.

Guðjón Jónsson.

Bergur Einar.

{{ userName(backer) }}

{{ backer.short_description }}

In Progress

This project has been successfully funded and is now executing.

€2,174

raised of €2,000 goal

0

days to go

65

Backers

109% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this! All gone!

Pledge € {{ reward.amount }} {{ reward.amount * 150 }} ISK


{{ reward.title }}

{{ reward.description }}

Limited ({{ stockLeft }} left of {{ reward.stock }} ) Gone (0 left of {{ reward.stock }} )
{{ reward.stock_reserved }} backer {{ reward.stock_reserved }} backers
Get this!

Pledge without a reward

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464