Help bring an amazing African choir to Iceland
--- English description below ---
Kammerkór Lebone skólans hefur skipulagt spennandi tónleikaferð um Ísland í mars og apríl 2014 en við þurfum á þinni hjálp að halda til að eiga fyrir farinu. Hjálpið okkur að koma til Íslands með okkar einstaka afríska anda.
Kammerkór Lebone skólans frá konungsríkinu Bafokeng í Suður-Afríku hefur verið boðið að koma fram á tónleikum í Hörpu 30. mars 2014. Þau eru spennt og þakklát og eru byrjuð að æfa töluvert af tónlist fyrir tónleikaferð sína til Íslands – efni úr allskonar áttum og á ýmsum tungumálum. Staðfest tónleikaboð hafa borist frá Reykjavík, Keflavík og Bolungarvík og ef af ferðinni verður mun að sjálfsögðu öðrum bæjarfélögum vera bætt við.
Þessi litli unglingakór stefnir á að halda ekki bara tónleika (einn og sameiginlega með öðrum) heldur ætlar líka að halda afrísk “workshop” með áhugasömum, þar sem afrískur söngur og dans verður kenndur.
Sjón er sögu ríkari og því bendum við á að á Facebook síðunni okkar má finna hljóð- og mynddæmi með kórnum.
--- English description ---
The Lebone Chamber has planned an exciting concert tour around Iceland in March and April 2014. All they need is the funds. Help them reach their goal and enrich Icelanders with their African spirit.
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464