Krakkaskrafl - Útgáfa á skemmtilegu og menntandi orðaleiksspili fyrir 6+ ára
Af hverju?
Hugmyndin að krakkaskraflinu Öskju kviknaði fyrir ári síðan, eftir að ég hafnaði boði um að kynna og kenna borðspilið Kröflu í fimmta bekk grunnskóla. Hugmyndin virtist góð en eftir stutta umhugsun var svarið of augljóst: Krafla er of erfið fyrir krakka.
Mér fannst sárt að þurfa að hafna þessu boði. Auðvitað ættu krakkar að geta skraflað! Hver sem getur raðað saman stöfum og myndað orð ætti að geta skraflað.
Hvernig?
Ég er svo lánsamur að eiga þrjú börn á grunnskólaaldri. Ég hef skraflað við þau, fylgst með þeim skrafla og þá hjálpað þeim að finna orð og reikna saman stigin. Þau luku aldrei heilum leik. Gáfust alltaf upp. Svo hættu þau alveg að skrafla.
Ég sagði þeim frá hugmyndinni og fékk þau í lið með mér að einfalda umgjörðina um þann kjarna leiksins að mynda orð með staftöflum á spilaborði. Niðurstaða þessarar vinnu er nýtt skraflspil sem krakkar hafa bæði gaman af og geta spilað hvert við annað án hjálpar.
Hvenær?
Nú þurfum við ykkar hjálp til að Askja verði að veruleika!
Þá geta ALLIR skraflað um næstu jól!
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464