Ég heiti Arngrímur Sigurðsson og er myndlistarmaður. Verkefnið sem ég er að safna framlögum til er útgáfa bókarinnar Duldýrasafnið.
... read more

FINISHED

This project is now finished.

€9,956

raised of €3,000 goal

0

days to go

213

Backers

332% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this! All gone!

Pledge € {{ reward.amount }} {{ reward.amount * 150 }} ISK


{{ reward.title }}

{{ reward.description }}

Limited ({{ stockLeft }} left of {{ reward.stock }} ) Gone (0 left of {{ reward.stock }} )
{{ reward.stock_reserved }} backer {{ reward.stock_reserved }} backers
Get this!

Pledge without a reward

Team

Arngrímur Sigurðsson

Writer
Í Duldýrasafninu skyggnumst við inn í veröld sem fæstir hafa augum litið.

Plan

To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.

Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.

Plan - Duldýrasafnið

100%
  • Mála myndir og taka saman texta
  • Hönnun
  • Umbrot
  • Próförk
  • Prentun
  • Dreifing

Further Information

Í Duldýrasafninu skyggnumst við inn í veröld sem fæstir hafa augum litið.
Þar tekur á móti okkur furðulegur félagsskapur duldýranna. Finngálknið, blendingur manns og dýrs, öllum vargi skaðlegri. Krákinn; hinn risavaxni kolkrabbi sem nærist á frystitogurum og flutningaskipum. Lyngbakurinn; ódauðlegt klækjahveli sem flotið hefur um heimsins höf í gervi eylands frá upphafi tímans. Trygglynd dagtröll og mannskæð nátttröll sem þvælast um fáfarna vegi og fjarlæga fjallasali. Dvergarnir og álfarnir sem búa í holtum og hæðum. Tilberar, galdrasendingar, mórar og huldulandið Tröllbotnaland.
Öll þessi furðufyrirbæri og fleiri til, efnisgerast á síðum Duldýrasafnins. Með hverri mynd fylgir texti sem er tekin beint úr sögnum og sjónlýsingum og gefa þau innsýn inn í óravíddir ímyndunaraflsins á liðnum öldum. Lýsingarnar bregða upp mynd af menningunni og mannlífinu sem framkallaði verurnar, fóstraði þær og hélt í þeim lífinu fram á okkar daga.

Hvað er Duldýrasafnið?

Duldýrasafnið er listaverkabók sem inniheldur 34 myndir af íslenskum hulduverum. Myndunum fylgja textar úr þjóðsögum og fornritum sem lýsa útliti, hegðun og helstu einkennum duldýranna og því hvernig samskiptum þeirra er háttað við mennska nágranna sína.
Myndirnar í bókinni eru olíumálverk og er þeim ætlað að varpa nýju ljósi á sérstæða veröld íslenskra furðufyrirbæra.
Duldýrasafnið er 80 blaðsíður, með 34 litmyndum og prentuð á vandaðan 170 gr. pappír. Bókin er í harðri kápu og klædd bókbandsdúk.

Ég óska eftir stuðningi til að geta klárað útgáfuferlið og staðið straum af prentkostnaði. Á móti lofa ég fallegri og áhugaverðri bók sem verður send heim að dyrum hvert á land sem er. Þeir sem styðja verkefnið eiga möguleika á því að eignast olíumálverk úr bókinni, en nafn eins heppins bakhjarls verður dregið úr lukkupotti í útgáfufögnuði í desember.

Lyngbakurinn og félagar hans í Duldýrasafninu geta komist á prent með þínum stuðningi.

{{ userName(backer) }}

{{ backer.short_description }}

FINISHED

This project is now finished.

€9,956

raised of €3,000 goal

0

days to go

213

Backers

332% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this! All gone!

Pledge € {{ reward.amount }} {{ reward.amount * 150 }} ISK


{{ reward.title }}

{{ reward.description }}

Limited ({{ stockLeft }} left of {{ reward.stock }} ) Gone (0 left of {{ reward.stock }} )
{{ reward.stock_reserved }} backer {{ reward.stock_reserved }} backers
Get this!

Pledge without a reward

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464