Art and culture festival
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
LÚR festival er listahátíð ungs fólks sem haldin verður 12.-15. júní á Ísafirði. Blásið verður í norræna hljóðfærið Lur til að setja hátíðina fimmtudaginn 12. júní kl. 20:00. Markmið hátíðarinnar er að skapa vettvang fyrir unga listamenn á Vestfjörðum til að koma fram og kynnast öðrum listamönnum.
Hópur ungmenna á Vestfjörðum á aldrinum 16-26 ára hafa skipulagt hátíðina í Menningarmiðstöðin Edinborg í vetur. Áhersla verður á myndlist, sviðslistir og kvikmyndir. Haldin verður sýning á afrakstri vinnusmiðja þar sem þemað verður tabú. Fáum við góða gesti frá Evrópu en það eru tveir hópar frá Finnlandi og Rúmeníu.
Langar þig að vera með á LÚR-fesival? Boðið verður upp á danssmiðju, myndlistasýningar víða um bæinn, flóamarkað, tískusýningu, kvikmyndasýningar, gjörninga og tónlistaviðburði. Danshópurinn Shär verður með ókeypis danssmiðju fyrir alla, skráning fer fram hér. Lokahóf LÚR-festival verður laugardaginn 14. júní, þar munu koma fram nokkur lókal bönd og hljómsveitin Mammút. Hægt er að finna upplýsingar á lurfestival.wordpress.com
Við erum LÚR- Lengst Útí Rassgati en það tekur bara 35 mín að fljúga hingað, hér er gott að vera í faðmi fjalla blárra og bærinn er iðandi af mannlífi. Boðið verður upp á tjaldsvæði miðsvæðis eða á Suðurtanga sem er í göngufæri við miðbæinn.
Sveitafélagið Ísafjarðarbær samanstendur af Ísafjarðarbæ, Hnífsdal, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri. Hafa allir staðirnir mikla náttúrufegurð og gömul krúttleg hús. Margskonar afþreyingu má finna á öllum stöðunum, s.s. kayak, gönguferðir, sjóstöng, hestaferðir, skoðunarferðir á söfn ásamt mörgu öðru áhugaverðu.
LÚR-fesival er styrkt af Menningarráði Vestfjarða, Ísafjarðarbæ og Evrópu Unga Fólksins.
Afhending miða á tónleka, bolir og miði fyrir tjaldsvæði verður hægt að nálgast í menningarmiðstöðina Edinborg á Ísafirði, Aðalstræti 7, þann 12. - 13.júní.
Bláber og póstkort verða send þegar bláberjauppskeran er góð (lok águst, byrjun september).
Hafðu samband við okkur lurfestival@gmail.com
Langar þig að vera með á LÚR-fesival? Boðið verður upp á danssmiðju, myndlistasýningar víða um bæinn, flóamarkað, tískusýningu, kvikmyndasýningar, gjörninga og tónlistaviðburði. Danshópurinn Shär verður með ókeypis danssmiðju fyrir alla, skráning fer fram hér. Lokahóf LÚR-festival verður laugardaginn 14. júní, þar munu koma fram nokkur lókal bönd og hljómsveitin Mammút. Hægt er að finna upplýsingar á lurfestival.wordpress.com
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464