Söngkona og lagahöfundur í hæfileikakeppni í Hollywood
Ég heiti Guðbjörg Linda Hartmannsdóttir en geng undir listamannanafninu Linda Hartmanns. Ég býð þér að styðja þátttöku mína í stærstu hæfileikakeppni heims sem heitir World Championships of Performing Arts eða WCOPA sem stytting. Ég er fyrsti og eini Íslendingurinn til að taka þátt í keppninni frá upphafi!
Ég hef verið að ryðja mér til rúms í tónlistarbransanum sem söngkona/lagahöfundur í nokkur ár núna og fór nýlega í áheyrnarprufu fyrir WCOPA keppnina sem hefur verið haldin í 24 ár. Af ótal
mörgum umsækjendum var ég valin til að fara beint til Hollywood í júlí til að keppa með sænska liðinu fyrir hönd Svíþjóðar með frumsömdum lögum mínum og flutningi þeirra.
Allir keppendur í WCOPA keppninni eru beðnir um að safna sponsum/styrktaraðilum þar sem keppnin greiðir ekki fyrir fluggjöld og gistingu. Allir sponsar/styrktaraðilar fá fyrirtækjalógó þeirra prentað á sérsaumaða jakka sem keppendur verða í í sjónvarpinu, í opnunaratriðinu, æfingabúðum, vinnusmiðjum og á lokaúrslitunum. Ég býðst einnig til þess að auglýsa alla sponsa/styrktaraðila reglulega á meðan á keppninni stendur í gegnum mínar persónulega síður á samfélagsmiðlum.
Á eftirfarandi síðu er hægt að sjá minn prófíl sem keppanda:
https://www.wcopascandinavia.com/Team 2020/linda-hartmann/
Eftirfarandi myndband er kynningarmyndband fyrir umrædda keppni árið 2019:
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464