Hljómsveitarverk og konsertar
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
Auk píanókonsertsins, sem hljómar hér að ofan, verða á diskunum hljóðritanir á verkum sem spanna stærstan hluta tónskáldaferils Jóns. Öll verkin eru í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, enda hefur samband Jóns við hljómsveitina verið náið alla tíð.
Þessi verk eru: Konsert fyrir hljómsveit, Bjarkamál, Canto elegiaco, Concerto lirico, Tvísöngur og Haustvísa.
Einleikarar eru auk Jóns Nordal: Einar Jóhannesson, Guðný Guðmundsdóttir, Ásdís Valdimarsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir og Elisabet Waage.
Sinfóníuhljómsveit Íslands stjórna: Petri Sakari, Bodhan Wodiczko og Jerzy Maksymiuk,
Á myndinni hér að ofan má sjá Jón ásamt Bodhan Wodiczko hljómsveitarstjóra og Birni Ólafssyni konsertmeistara á góðri stund, væntanlega í tengslum við hljóðritun á Píanókonsertinum.
Þó svo að það geti verið viss mótsögn fólgin í því að tala um eða skrifa um tónlist þá fjallar Kolbeinn Bjarnason engu að síður nokkuð ítarlega um Jón Nordal og verkin í ritgerð sem fylgir útgáfunni. Þar segir meðal annars. „Jón Nordal hefur aldrei fjallað óumbeðinn og að fyrra bragði um tónlist sína. Hins vegar hefur hann ætíð svarað öllum spurningum greiðlega í fjölmörgum viðtölum. Það hefur hann gert af einlægni án útúrsnúninga en svörin eru sjaldnast einföld, ekki frekar en tónsmíðaferlið sjálft.“
Nánar má lesa grein Kolbeins þegar söfnun er lokið og útgáfan lítur dagsins ljós.
Útgáfan er framleidd í 300 (eða 400) tölusettum eintökum. Ekki verður um endurgerð að ræða.
Útgáfan hefur því söfnunargildi.
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464