Ljósmyndabók um hvað þú getur gert til þess að minnka vistsporið
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
Plastframleiðsla hefur þrefaldast eftir tíunda áratuginn og meira en helmingur af plasti í heiminum var framleitt eftir árið 2003. Þetta fer hratt versnandi en um 8.000.000 tonn af plasti enda í sjónum á hverju ári, það þýðir að rúmlega hálft tonn af plasti er sett á sjóinn á hverri mínútu.
Ábyrgðin á ekki að vera á hinum almenna borgara að takast á við vandamál líkt og plastmengun, súrnun sjávar og losun gróðurhúsalofttegunda en hver og einn getur lagt sitt af mörkum í rétta átt með bættu neyslumynstri í sínu lífi.
Ég ætla að skoða umhverfis- og vistvæna hegðun hjá Kópavogsbæ og Kópavogsbúum. Hvað er verið að gera, hvað er ekki verið að gera og hvað er hægt að gera til þess að bæta það.
Út frá því mun ég síðan gefa út ljósmyndabókina "Grænn Kópavogur" sem verður hálfgerður leiðarvísir fyrir einstaklinga um hvað þeir geta gert til þess að minnka vistspor sitt á jörðinni.
...Fyrir umhverfisunnendur
...Fyrir Kópavogsbúa
...Á stofuborðið
...Í afmælispakkann
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464