Sigvaldi Books update and improve
Vefbúðin virkar í fáum dráttum þannig að ég hef engan lager. Þegar pöntun berst á bók fer ég og næ í bókina. Þá hnýti ég sem sagt á mig skóna, set á mig töskuna Víðgelmi og fer í kaupstaðaferð en ég bý ásamt fjölskyldunni á Stokkseyri. Satt best að segja geri ég nokkuð mikið af því. Kann því líka vel að labba, stundum í góðu veðri, stundum ekki. Labba á bókaútgáfurnar, hitta af því frábæra fólki sem vinnur í bókaútgáfunum. Labba.
Hinkra svo eftir strætóum.
Á þennan hátt má segja að Sigvaldi Books virki vel. Vefbúðin þjóni því hlutverki sem ég ætlaði á þessu stigi. Eins árs og virkar. En betur má ef duga skal.
Ég fer af stað með þessa söfnun til að uppfæra búðina. Margt sem þarf að bæta svo einstaklingar geti betur notið hennar. Líka til að reyna að nálgast þetta fyrirbæri; bókina á annan hátt en hefur verið gert. Geta fjallað meir um bækur, kynnt þær og fært nær lesendum. Þannig bókin standi ekki endilega bara tvívíð á skjánum hjá viðskiptavinum mínum. Líka að hafa sem mest af upplýsingum um bækur á fleiri tungumálum en íslensku eingöngu.
Þau sem taka þátt í þessu verkefni með mér fá staðinn afslátt af bókum eða bókagjafir. Afslátt sem hægt er að notfæra sér í jólabókakaupum sem dæmi. Gjafir sem hægt er að nota ... sem gjafir. Þess fyrir utan væri þetta styrkur til að bæta í flóru bóksölu og kynningu á íslenskum bókum. Og mínar bestu þakkir vissulega ævarandi.
Hægt er að fylgjast með póstum sem ég mun birta á facebook síðu Sigvalda books og LinkedIn síðu sömuleiðis.
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464