Fyrsta ljóðabók Dísu Sigurðardóttur
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
Eftir að hafa sett drauminn um að gefa út ljóðabók á hakann oftar en ég þori að viðurkenna, hef ég loksins ákveðið að láta verða af því.
Takist mér að safna fyrir prentun á bókinni get ég ekki lengur afsakað útgáfuleysið með peningaskorti, enda er ekkert annað til fyrirstöðu.
Með því að styrkja þetta verkefni látið þið gamlan draum rætast og mun útgáfa bókarinnar marka upphafið af ferli mínum sem rithöfundur og skáld. En mig hefur alltaf langað til þess að starfa við ritstörf, eða frá því ég gafst upp á draumnum um Hollywood þegar ég var 10 ára gömul.
Ljóðabókin Hvörf er safn ljóða sem snerta á einn eða annan hátt á ástinni, í öllum þeim myndum sem hún getur birst. Ljóðabókin er sú fyrsta sem ég mun senda frá mér.
Hluti af handritinu varð til sem MA verkefni mitt í Ritlist veturinn 2014 undir leiðsögn skáldsins Sigurbjargar Þrastardóttur (Blysfarir, 2007). Síðan þá hef ég bætt stöðugt inn í handritið og mun því lokaútgáfan vera nokkuð stærri en þau þrjátíu ljóð sem skilað var til Háskóla Íslands.
Útgáfa bókarinnar er fyrirhuguð í desember en til þess þarf ykkar hjálp.
Ég mun sjálf sjá um hönnun kápu og umbrot. Sá peningur sem safnast saman, náum við markmiðinu, mun fara í prentkostnað og prófarkalestur.
Ég lærði umbrot og skjámiðlagrafík í Borgarholtsskóla og þrátt fyrir að hafa ekki tekið sveinsprófið í umbroti, hef ég í gegnum árin haldið þeirri kunnáttu við með hinum ýmsu verkefnum. Nú síðast með því að sjá um umbrotið á Jólabók Blekfjelagsins 2014, sem er árlegt örsögurit gefið út af nemendafélagi ritlistarnema HÍ.
Þeim sem taka sér tímann til þess að kynna sér verkefnið vil ég þakka kærlega. Hvert framlag skiptir máli og fyrir þá sem sjá sér ekki fært að styrkja með fjárveitingu bendi ég á að heilmikill stuðningur er fólginn í því að deila verkefninu á samfélagsmiðlum.
Kærar þakkir!
Brot úr handritinu:
Aftursætið
við níutíu kílómetra á sekúndu
renna fjarlægar ljósdoppur saman
í gular rendur sem
lýsa upp sjávarmálið
það mótar fyrir
daufri skissu
af fjallstindi
í myrkrinu
og hjartað sekkur hálfan sentimetra
þegar hugurinn sér
sólgul tún
og beyglaða appelsínflösku
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464